Naustahverfi 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi vegna lóðamarka milli Þrumutúns 2 og 4

Málsnúmer 2011010004

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3297. fundur - 01.02.2011

5. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 26. janúar 2011:
Í framhaldi af bókun skipulagsnefndar þann 10. nóvember 2010 leggja umsækjendur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðanna unna af Kollgátu ehf, dags. 28. desember 2010.
Óskað er eftir breytingu á lóðamörkum Þrumutúns 2 og 4. Með þeirri deiliskipulagsbreytingu stækkar lóð nr. 4 til suðurs sem nemur 7,9 m² og lóð nr. 2 minnkar sem því nemur.
Aðeins er verið að breyta lóðamörkum tveggja aðliggjandi lóða og varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og Akureyrarbæjar.
Með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og skipulagstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.