Bæjarstjórn

3297. fundur 01. febrúar 2011 kl. 16:00 - 16:52 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Starfsmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Sigmar Arnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 332. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 19. janúar 2011.
Fundargerðin er í 9 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á 7. lið fundargerðarinnar. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.

Bæjarstjórn staðfestir 7. lið í fundargerð skipulagsstjóra dags. 19. janúar 2011 með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Afgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 333. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 26. janúar 2011. Fundargerðin er í 7 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á 3., 4., 5. og 7. lið. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.

Bæjarstjórn staðfestir 3., 4., 5. og 7. lið í fundargerð skipulagsstjóra dags. 26. janúar 2011 með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Vestursíða hjúkrunarheimili - deiliskipulag

Málsnúmer 2010100087Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011:
Tillagan var auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu þann 5. nóvember 2010 með athugasemdafresti til 17. desember 2010.
Ein athugasemd barst og hefur henni verið svarað sjá fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt samkv. 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 6 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista, Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Hermann Jón Tómasson S-lista og Ólafur Jónsson D-lista sátu hjá við afgreiðslu.

4.Hlíðarfjall - deiliskipulag skíðasvæðis

Málsnúmer 2010030004Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 26. janúar 2011:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu dags. 18. janúar 2011 að deiliskipulagi af skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Tillagan er unnin af X2 hönnun-skipulagi ehf, dags. 18. janúar 2011. Einnig var lögð fram greinargerð og umhverfisskýrsla skv. lögum um umhverfismat áætlana dags. 18. janúar 2011. Ómar Ívarsson kynnti tillöguna. Skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna.
Skipulagsnefnd óskar eftir að fram komi í greinargerð áætlaður fjöldi gistirýma og leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Naustahverfi 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi vegna lóðamarka milli Þrumutúns 2 og 4

Málsnúmer 2011010004Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 26. janúar 2011:
Í framhaldi af bókun skipulagsnefndar þann 10. nóvember 2010 leggja umsækjendur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðanna unna af Kollgátu ehf, dags. 28. desember 2010.
Óskað er eftir breytingu á lóðamörkum Þrumutúns 2 og 4. Með þeirri deiliskipulagsbreytingu stækkar lóð nr. 4 til suðurs sem nemur 7,9 m² og lóð nr. 2 minnkar sem því nemur.
Aðeins er verið að breyta lóðamörkum tveggja aðliggjandi lóða og varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og Akureyrarbæjar.
Með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og skipulagstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Reglur félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 2010010047Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynnti drög dags. í janúar 2011 að breytingum á reglum félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.
Félagsmálaráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar breytingar á Reglum félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS

Málsnúmer 2011010062Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 27. janúar 2011:
Lagt fram samkomulag um kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga við SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samningsumboðið og vísar því til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir samningsumboðið með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 20. og 27. janúar 2011
Skipulagsnefnd 26. janúar 2011
Framkvæmdaráð 14. janúar 2011
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 14. janúar 2011
Stjórn Akureyrarstofu 13. janúar 2011
Skólanefnd 10. og 24. janúar 2011
Íþróttaráð 13. janúar 2011
Félagsmálaráð 26. janúar 2011
Samfélags- og mannréttindaráð 19. janúar 2011
Umhverfisnefnd 20. janúar 2011

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is / Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 16:52.