Leiksólinn Hólmasól - námskeiðs- og skipulagsdagar 2011

Málsnúmer 2010100066

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 25. fundur - 15.11.2010

Erindi dags. 6. október 2010 frá Leikskólanum Hólmasól þar sem sótt er um leyfi til að færa til námskeiðs- og skipulagsdaga næsta árs vegna fyrirhugaðrar kynnisferðar til Svíþjóðar.

Skólanefnd samþykkir erindið, en bendir á nauðsyn þess að haft sé samráð við foreldra um þessa breytingu.