Skipulagsstofnun - ný skipulagsreglugerð

Málsnúmer 2010090079

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 128. fundur - 30.11.2011

Erindi dagsett 3. nóvember 2011 frá umhverfisráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn vegna gerðar nýrrar skipulagsreglugerðar. Óskað er eftir að umsögnin berist ráðuneytinu eigi síðar en 1. desember 2011.

Skipulagsstjóra og formanni skipulagsnefndar er falið að fullgera umsögn um drög að nýrri skipulagsreglugerð í samræmi við umræður á fundinum.