Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2010

Málsnúmer 2010060129

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1107. fundur - 08.09.2010

Fjallað um umsókn Fjölsmiðjunnar dags. 25. júní 2010 um rekstrarstyrk að upphæð 4 milljónir króna.

Samkvæmt ársreikningi Fjölsmiðjunnar var eiginfjárstaðan afar góð um sl. áramót og því telur félagsmálaráð ekki ástæðu til að veita Fjölsmiðjunni styrk á þessu ári. Umsókninni er synjað.

Félagsmálaráð - 1109. fundur - 04.10.2010

Tekin fyrir að nýju, vegna nýrra upplýsinga, ósk Fjölsmiðjunnar á Akureyri um rekstrarstyrk fyrir árið 2010, áður á dagskrá ráðsins 8. september sl.

Afgreiðslu frestað.

Félagsmálaráð - 1112. fundur - 10.11.2010

Tekin fyrir að nýju, vegna nýrra upplýsinga, ósk Fjölsmiðjunnar á Akureyri um rekstrarstyrk fyrir árið 2010, áður á dagskrá ráðsins 8. september sl.

Félagsmálaráð samþykkir að veita Fjölsmiðjunni á Akureyri rekstrarstyrk að upphæð kr. 2.579.400.