Félagsmálaráð

1109. fundur 04. október 2010 kl. 14:15 - 16:25 Fundarsalur á 4. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Anna Guðný Guðmundsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Margrét Guðjónsdóttir
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2011 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2010090173Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir starfandi framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK og Sigríður Fanney Guðjónsdóttir fulltrúi á skrifstofu ÖA kynntu drög að fjárhagsáætlunum deilda árið 2011.
Lagt fram til kynningar.

2.Áfrýjun vegna synjunar á húsaleigubótum

Málsnúmer 2010090159Vakta málsnúmer

Dan Brynjarsson fjármálastjóri kynnti áfrýjun vegna synjunar húsnæðisdeildar Akureyrarbæjar um húsaleigubætur. Áfrýjunin og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2010

Málsnúmer 2010060129Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju, vegna nýrra upplýsinga, ósk Fjölsmiðjunnar á Akureyri um rekstrarstyrk fyrir árið 2010, áður á dagskrá ráðsins 8. september sl.

Afgreiðslu frestað.

Fundi slitið - kl. 16:25.