Íþróttasvæði Þórs - keppnisbúnaður fyrir frjálsar íþróttir

Málsnúmer 2009050124

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 171. fundur - 09.07.2010

Lögð fram til kynningar niðurstaða verðfyrirspurnar vegna keppnisbúnaðar fyrir frjálsar íþróttir. Sex tilboð bárust og eftir yfirferð var ákveðið að skipta kaupunum á milli Sport-tæki ehf og Á.Óskarssonar ehf.