Knattspyrnufélag Akureyrar - íþróttaaðstaða í Naustahverfi

Málsnúmer 2005050059

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 142. fundur - 21.11.2013

Tekið fyrir bréf dags. 24. október 2013 frá Hrefnu G. Torfadóttur formanni KA og Sævari Péturssyni framkvæmdarstjóra KA þar sem félagið óskar eftir því að fá úthlutað hið fyrsta íþróttasvæði í Naustahverfi.
Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Pétri Bolla fyrir komuna.

Íþróttaráð óskar eftir því við skipulagsnefnd að hugað verði að skipulagi á íþróttasvæði í Naustahverfi.