Kjarasamninganefnd

2. fundur 02. maí 2014 kl. 09:00 - 09:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hallgrímur Guðmundsson
  • Hjalti Ómar Ágústsson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir fundarritari
Dagskrá

1.TV einingar - ljósmæður á HAK

Málsnúmer 2014050001Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að úthlutun tímabundinna viðbótarlauna (TV-eininga) vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna til starfa ljósmæðra á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Í samræmi við reglur Akureyrarbæjar hefur framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar tekið þátt í umfjöllun um tillöguna og gerir ekki athugasemd við hana.

Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu um breytingar á úthlutun tímabundinna viðbótarlauna með gildistíma frá 1. apríl 2014.

Fundi slitið - kl. 09:50.