Fræðslunefnd

1. fundur 13. janúar 2021 kl. 13:00 - 13:27 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir formaður
  • Dan Jens Brynjarsson
  • Guðrún Guðmundsdóttir
  • Steindór Ívar Ívarsson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
  • Anna Lilja Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Anna Lilja Björnsdóttir mannauðsráðgjafi
Dagskrá

1.Námsleyfasjóður embættismanna - 2021

Málsnúmer 2020120418Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs kynnti breytingar á stöðu námsleyfasjóðs embættismanna.
Að ákvörðun kjarasamningsnefndar og bæjarstjóra hefur námsleyfasjóður embættismanna verið lagður niður og þar með falla reglur um námsleyfasjóð úr gildi. Ákvörðun á rót að rekja til stéttarfélagsaðildar embættismanna.

Með vísan til þess að námsleyfasjóður embættismanna hefur verið lagður niður leggur fræðslunefndin til við bæjarráð að endurskoðuð verði skipan embættismanna í fræðslunefnd.

2.Námsleyfasjóður sérmenntaðs starfsfólks - 2021

Málsnúmer 2020120419Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs kynnti breytingar á stöðu námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks.
Með vísan til COVID-19 og stöðu bæjarsjóðs var ekki veitt framlag til námsleyfasjóðs sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar á fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 og þar með verður ekki úthlutað úr sjóðnum vegna námsleyfis á skólaárinu 2021-2022.

Fundi slitið - kl. 13:27.