Fræðslunefnd

1. fundur 25. apríl 2017 kl. 11:00 - 11:30 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagný Magnea Harðardóttir varaformaður
  • Dan Jens Brynjarsson
  • Halldór Sigurður Guðmundsson
  • Karólína Gunnarsdóttir
  • Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir
Dagskrá

1.Námsstyrkjasjóður embættismanna - 2017

Málsnúmer 2017040041Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fór yfir stöðu námsstyrkjasjóðs embættismanna.
Fyrirliggjandi úthlutun úr sjóðnum bindur ráðstöfunarfé hans til ársloka 2018. Ástæðan er fækkun embættismanna við stjórnsýslubreytingarnar og þar með minni tekjur sjóðsins. Miðað við núverandi greiðendur í sjóðinn nægja tekjur sjóðsins einungis fyrir úthlutun á fjögurra mánaða námsleyfi á ári.

Staða sjóðsins býður því ekki upp á úthlutun úr sjóðnum í haust.

Fundi slitið - kl. 11:30.