Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

410. fundur 22. ágúst 2012 kl. 13:15 - 14:05 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Hafnarstræti 91 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á 2., 3. og 4. hæð

Málsnúmer 2012080048Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Reita 1 ehf., kt. 510907-0940, óskar eftir leyfi til að bæta við svölum á 2., 3. og 4. hæð, bæta við baðherbergi á 4. hæð og endurnýja lyftu að Hafnarstræti 91. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Kaupvangsstræti 1 - umsókn um leyfi fyrir kvisti á suðurhlið.

Málsnúmer 2012080050Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. ágúst 2012 þar sem Gísli Gestssson f.h. Ljósmyndavara ehf., kt. 540174-0409, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á vesturálmu hússins að Kaupvangsstræti 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Örn Sigurðsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.Naustatangi 2 - umsókn um leyfi fyrir breytingum og viðbyggingu

Málsnúmer 2012070063Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. júlí 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Slippsins á Akureyri ehf., kt. 511005-0940, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum og viðbyggingu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar og umsókn um undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr.6.1.3. Kröfur um algilda hönnun lið h.
2. Gr.6.7.2. Algild hönnun.
3. Gr.13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
4. Gr.13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
5. Gr.13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvrki og viðbyggingar.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

4.Oddeyrartangi 149132 (Bústólpi) - umsókn um leyfi fyrir girðingu.

Málsnúmer 2012080061Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. ágúst 2012 þar sem Jónas Karlesson f.h. Bústólpa ehf., kt. 541299-3009, óskar eftir framkvæmdaleyfi til að girða lóð Bústólpa á Oddeyrartanga, lnr. 149132, samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd og með samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:05.