Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

400. fundur 06. júní 2012 kl. 13:00 - 14:05 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hrafnabjörg 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN090245Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Viggó Benediktsson f.h. Höfðahúss ehf., kt. 551105-0750, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Hrafn Hlöðversson. Innkomnar nýjar teikningar 30. maí 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Miðholt 4 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012060051Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 4. júní 2012 þar sem Jón Ingi Guðmundsson og Kristín L. Ásmundsdóttir sækja um fjölgun bílastæða úr 2 í 4 við hús sitt nr. 4 við Miðholt. Sjá frekar í umsókn.

Skipulagsstjóri samþykkir úrtak vestan megin við inngangsstétt að húsi. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

3.Borgarsíða 7 - reyndarteikningar

Málsnúmer BN050144Vakta málsnúmer

Innkomnar reyndarteikningar 23. maí 2012 frá Loga Má Einarssyni fyrir Borgarsíðu 7. Einnig er sótt um leyfi fyrir áhaldageymslu á lóðamörkum Borgarsíðu 5. Meðfylgjandi er samþykki nágranna.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Tjarnartún 25 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012060018Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. maí 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Viðars Þórs Pálssonar og Sólveigar Styrmisdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu að Tjarnartúni 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð nr. 112/2012:
1) Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h. varðandi hönnun umferðarleiða innan bygginga sjá kafla 6.4.
2) Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
3) Gr. 6.7.8. Íbúðarherbergi varðandi kröfu um eitt 14 fermetra herbergi.
4) Gr. 8.5.2. Gler.
5) Gr. 13.2.1. til 13.3.3. Varðandi útreikning heildarleiðnitaps, heildarorkuþarfa og hámarks U-gilda byggingarhluta.
Einnig er óskað eftir takmörkuðu byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, undirstöðum og frárennslislögnum.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

5.Eyjafjarðarbraut - breytingar í flugstöð

Málsnúmer 2012060061Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júní 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Isavia ohf., kt. 550210-0370, sækir um breytingar á skipulagi tollafgreiðslu í norðurenda flugstöðvar að Eyjafjarðarbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Furuvellir 18 - umsókn um leyfi til að breyta útihurðum

Málsnúmer 2011120012Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. maí 2012 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Vífilfells ehf., kt. 470169-1419, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Furuvelli 18, tvískipt hurð er felld út sem neyðarútgangur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Hlíðarfjallsvegur 215098 Gámaþjónustan - sorpflokkunarstöð - byggingarleyfi

Málsnúmer BN100254Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. maí 2012 þar sem Bjarni Reykjalín f.h. Gámaþjónustu Norðurlands, kt. 481287-1039, sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af sorpflokkunarhúsi við Hlíðarfjallsveg lnr. 215098. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín og brunahönnun frá Mannviti.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:05.