Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

962. fundur 11. apríl 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hlíðarvellir 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024031443Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. mars 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. atNorth ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir gagnaveri ásamt stoðrýmum á lóð nr. 1 við Hlíðarvelli. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Helgamagrastræti 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024021230Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. febrúar 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Valþórs Inga Einarssonar sækir um breytingar innanhúss í húsi nr. 5 við Helgamagrastræti. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hofsbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042331Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. apríl 2024 þar sem Ásgeir Ásgeirsson f.h. Boxhus ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hofsbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ásgeir Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hofsbót 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024031193Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. mars 2024 þar sem Ásgeir Ásgeirsson f.h. Boxhus ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 4 við Hofsbót. Innkomin gögn 5. apríl 2024 eftir Ásgeir Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Hvannavellir 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024020847Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. febrúar 2024 þar sem Bent Larsen Fróðason fyrir hönd BB bygginga ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 10 við Hvannavelli. Innkomin ný gögn 4. apríl 2024 eftir Bent Larsen Fróðason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Baldursnes 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023121566Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. desember 2023 þar sem Sigríður Magnúsdóttir f.h. Atlantsolíu ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir rafmagnshleðslubúnaði á lóð nr. 3 við Baldursnes.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

7.Oddeyrargata 6A - fyrirspurn um byggingaráform

Málsnúmer 2023030813Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. apríl 2024 þar sem Edda Kamilla Örnólfsdóttir sækir um leyfi til að reisa skjólvegg fyrir sólpall á lóðamörkum allt að 1,8m á hæð, ásamt smáhýsi á lóðamörkum.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.