Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

950. fundur 19. janúar 2024 kl. 11:00 - 11:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hjálmar Árnason fundarritari
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Gleráreyrar 1, rými 1-3, mathöll - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010736Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignarfélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir mathöll í rýmum 1, 2 og 3 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Þingvallastræti 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010742Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Ívar Hauksson fyrir hönd G.M.Í. ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir nýbyggingu á lóð nr. 31 við Þingvallastræti. Óskað er eftir að byggja vinnustofu. Innkomin gögn eftir Ívar Hauksson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Rauðamýri 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010797Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. janúar 2024 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Ámunda Rögnvaldssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir endurbótum á húsi nr. 16 við Rauðumýri. Meðal annars á að skipta um þak og stækka gluggaop. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 11:30.