Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

948. fundur 04. janúar 2024 kl. 13:00 - 13:50 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Hafnarstræti 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023171Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. janúar 2024 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 34 við Hafnarstræti. Innkomin gögn eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2023 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 4. janúar 2024 eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:50.