Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

947. fundur 28. desember 2023 kl. 14:45 - 15:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Austurvegur 36 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023120834Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. desember 2023 þar sem Sigríður Ólafsdóttir fyrir hönd Hallgríms Helgasonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús nr. 36 við Austurveg í Hrísey. Innkomin gögn eftir Sigríði Ólafsdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2023 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 18. desember 2023 eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Baldursnes 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023121566Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. desember 2023 þar sem Sigríður Magnúsdóttir fyrir hönd Atlantsolíu sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir rafmagnshleðslubúnaði á lóð nr. 3 við Baldursnes.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Fundi slitið - kl. 15:30.