Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

944. fundur 07. desember 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Mýrarvegur - Kaupangur - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023050248Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. desember 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarapóteks ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í Kaupangi, matshluta 01. Innkomin gögn eftir Ragnar Freyr Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Fjölnisgata 6a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN050768Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. desember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Fjölnis ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á atvinnuhúsnæði nr. 6a við Fjölnisgötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Lækjargata 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023120307Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. desember 2023 þar sem Anna Kristín Karlsdóttir fyrir hönd Grétars Jónssonar sækir um breytta notkun íbúðar 201 í húsi nr. 6 við Lækjargötu. Innkomin gögn eftir Önnu Kristínu Karlsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Týsnes 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050365Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. desember 2023 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir geymsluhúsnæði á lóð nr. 22 við Týsnes. Innkomin gögn eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:00.