Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

941. fundur 16. nóvember 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Oddeyrarbót 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061408Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. nóvember 2023 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Kela Seatours ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 1 við Oddeyrarbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hugrúnu Þorsteinsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Strandgata 23 - umsókn um breytta notkun íbúðar

Málsnúmer 2023101469Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. október 2023 þar sem Þorsteinn Marinósson sækir um breytta notkun íbúðar 0101 í húsi nr. 23 við Strandgötu úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði .
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.