Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

939. fundur 26. október 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Austursíða 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023040222Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. október 2023 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 6 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Hlíðarbraut - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023100851Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2023 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir uppsetningu á rafmagnshleðslubúnaði á bensínstöðvarlóð Hlíðarbrautar. Innkomnar teikningar eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.