Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

929. fundur 17. ágúst 2023 kl. 13:00 - 13:35 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Byggðavegur 152 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023070432Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. júlí 2023 þar sem Magnús Valur Benediktsson fyrir hönd Ottós Magnússonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús á lóð nr. 152 við Byggðaveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Magnús Val Benediktsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Álfaholt 5-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050974Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. maí 2023 þar sem Davíð Örn Benediktsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 5-7 við Álfaholt. Innkomnar nýjar teikningar 4. ágúst eftir Magnús Ingvarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Álfaholt 1-3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023080477Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. ágúst 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Einars Guðmundssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 1-3 við Álfaholt.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Geirþrúðarhagi 5C - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir sólskála

Málsnúmer 2023051069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. ágúst 2023 þar sem Friðrik Friðriksson fyrir hönd Ragnhildar Þorgeirsdóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikninum fyrir sólskála við Geirþrúðarhaga 5C.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Hulduholt 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060510Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Guðlaugs Óla Þorlákssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi við lóð nr. 31 við Hulduholt. Innkomnar nýjar teikningar 16. ágúst 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:35.