Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

928. fundur 10. ágúst 2023 kl. 13:00 - 13:20 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Hjálmar Árnason Skjalavörður
Dagskrá

1.Munkaþverárstræti 16 - umsókn um byggingaráform, breytta notkun rýma.

Málsnúmer 2023050118Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2023 þar sem Angantýr Ómar Ásgeirsson sækir um breytta notkun á rýmum húss nr. 16 við Munkaþverárstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ævar Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Týsnes 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júní 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd T4 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir lóð nr. 4 við Týsnes. Innkomnar nýjar teikningar 9. ágúst 2023 eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:20.