Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

921. fundur 22. júní 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Halla Eyjólfsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hofsbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042331Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. júní 2023 þar sem Ásgeir Ásgeirsson fyrir hönd Boxhus ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hofsbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ásgeir Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Kjarnagata 55-57 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022030840Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. júní 2023 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 55-57 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Mýrarvegur /Kaupangur - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023050248Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. maí 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarapóteks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild í Kaupangi, matshluta 01. Innkomnar nýjar teikningar 21. júní 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hulduholt 25 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. maí 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Rögnvaldar Sigurðssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 25 við Hulduholt. Innkomnar nýjar teikningar 21. júní 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Álfaholt 5-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050974Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. maí 2023 þar sem Davíð Örn Benediktsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 5-7 við Álfaholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Magnús Ingvarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:00.