Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

920. fundur 15. júní 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá

1.Hulduholt 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060510Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Guðlaugs Óla Þorlákssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 31 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Geirþrúðarhagi 5C - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild fyrir sólskála

Málsnúmer 2023051069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. maí 2023 þar sem Ragnhildur Þorgeirsdóttir sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir sólskála við Geirþrúðarhaga 5C. Innkomnar nýjar teikningar 13. júní 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.