Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

893. fundur 08. desember 2022 kl. 14:00 - 14:25 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Brekkugata 29 - umsókn um byggingaráform, breytt notkun og svalir

Málsnúmer 2022111225Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. nóvember 2022 þar sem Sigurður Ingi Kristófersson sækir um byggingarleyfi fyrir svölum á hús nr. 29 við Brekkugötu og breytta notkun á rýmum. Innkomnar nýjar teikningar 6. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hrafnagilsstræti 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022110605Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús á lóð nr. 2 við Hrafnagilsstræti. Innkomnar nýjar teikningar 7. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hulduholt 13-19 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022051558Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. desember 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Kötlu ehf. byggingarfélags sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjögurra íbúða raðhúsi á einni hæð á lóð nr. 13 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:25.