Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

804. fundur 03. mars 2021 kl. 11:30 - 11:46 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Furuvellir 5 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun á 2. hæð

Málsnúmer 2021023056Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. febrúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Ormsson ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð húss nr. 5 við Furuvelli. Fyrirhugað er að breyta hæðinni í íbúðir. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Hafnarstræti 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023171Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 34 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi

Málsnúmer 2021023172Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 11:46.