Upplýsingar um viðburð
Þekkir þú barn sem hefur gaman af að spila?
Í vor mun Amtsbókasafnið halda áfram með spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 10-13 ára. Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:00. Fyrsti spilafundur ársins 2018 verður haldinn miðvikudaginn 10. janúar. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, mun leiða hópinn.
Allir krakkar á aldrinum 10-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is
Spilaklúbburinn mun hittast á eftirfarandi dögum í vor:
10. janúar
24. janúar
7. febrúar
21. febrúar
7. mars
21. mars
4. apríl
18. apríl
2. maí
16. maí
(Birt með fyrirvara um breytingar)