Fannagil 22-30 - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer SN100092

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 380. fundur - 11.01.2012

Erindi dagsett 3. september 2010 þar sem Ásmundur Jónas Guðjónsson sækir um stækkun á lóðinni að Fannagili 22 - 30 um 8 m til norðurs. Meðfylgjandi er samþykki annarra eigenda lóðarinnar.

Skipulagsstjóri samþykkir stækkun á lóðinni í samræmi við gildandi deiliskipulag. Lóðarskrárritara falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði.