Urðargil 24 - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer SN090072

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 380. fundur - 11.01.2012

Erindi dagsett 10. júlí 2009 þar sem Gunnlaugur Jón Gunnlaugsson og Hrund Briem sækja um stækkun á lóð sinni að Urðargili 24. Stækkunin nemi 5-6 m til vesturs.

Skipulagsstjóri samþykkir stækkun á lóðinni í samræmi við gildandi deiliskipulag. Lóðarskrárritara falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði.