Hafnarstræti 86a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN100175

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 344. fundur - 13.04.2011

Erindi dagsett 4. apríl 2011 þar sem Bjarni Reykjalín f.h. Arkitekturs og ráðgjafar ehf., kt. 650106-1130, sækir um að setja tvo nýja glugga á húsið nr. 86a við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín dagsettar 4. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.