Heiðartún 5 - lóðarumsókn

Málsnúmer BN100119

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 370. fundur - 26.10.2011

Erindi dagsett 1. júní 2010 þar sem Fríða Stefánsdóttir f.h. Reisum byggingarfélags ehf., kt. 470809-0270, sækir um lóðina nr. 5 við Heiðartún. Meðfylgjandi er staðfesting frá Sparisjóði Siglufjarðar.
Skipulagsnefnd úthlutaði lóðinni 9. júní 2010 og lögð voru á gatnagerðargjöld að upphæð kr. 5.743.640,- sem umsækjandi gerði samning um við fjárreiðudeild bæjarins. Umsækjandi hefur ekki staðið við samninginn.

Skipulagsstjóri gefur umsækjenda frest til 4. nóvember til að greiða gatnagerðargjöldin, að öðrum kosti fellur lóðin aftur til bæjarins.