Sjafnarnes 2 - rekstrarleyfi steypustöðvar

Málsnúmer BN100027

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 380. fundur - 11.01.2012

Erindi dagsett 22. desember 2011 frá Þór Konráðssyni þar sem hann f.h. Steypustöðvar Akureyrar ehf, kt. 540208-1150 sækir um rekstrarleyfi til reksturs steypustöðvar að Sjafnarnesi 2, Akureyri.
Meðfylgjandi eru samræmisyfirlýsingar um eiginleika fylliefna og samræmismat fyrir steypuframleiðslu frá Mannviti hf. ásamt samningi við Mannvit hf.um gæðamat.
Einnig fylgir starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.

Skipulagsstjóri veitir hér með Steypustöð Akureyrar ehf, kt. 540108-1150, leyfi til reksturs steypustöðvar að Sjafnarnesi 2, Akureyri til 1. mars 2013 eða þar til samningur við Mannvit hf. um gæðamat steypuframleiðslunnar rennur út.