Reykjasíða 18 - umsókn um stækkun á bílastæði

Málsnúmer BN090157

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 404. fundur - 02.07.2012

Erindi dagsett 28. júní 2012 þar sem Elías Wium Guðmundsson og Elín Sif Sigurjónsdóttir sækja um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir stækkun á bílastæði við húsið að Reykjasíðu 18. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðnar breytingar á bílastæðinu þannig að úrtak úr kantsteini verði að hámarki 7 m fyrir stærra stæðið og 3,6 m fyrir minna stæðið.