Norðurtangi 7 - lóðarumsókn.

Málsnúmer BN080143

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 338. fundur - 02.03.2011

Erindi dagsett 24. febrúar 2011 þar sem Sveinn Björnsson f.h. Blikk- og tækniþjónustunnar, 431188-1479, óskar eftir að skila inn úthlutaðri lóð við Norðurtanga 7. Jafnframt er þess óskað að sá hluti gatnagerðargjalds sem greiddur var til bæjarins 20. júní 2008 verði endurgreiddur.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Gatnagerðargjald er endurgreitt í samræmi við 9. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda. Umsækjandi skal hafa samband við fjárreiðudeild Akureyrarkaupstaðar vegna endurgreiðslunnar.