Sjafnargata 7 - tilkynning vegna innköllunar lóðar

Málsnúmer BN060812

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 452. fundur - 17.07.2013

Þann 22. júlí 2009 var undirritað samkomulag milli Akureyrarbæjar og Brimborgar ehf., kt. 701277-0239, um frest á byggingarframkvæmdum og greiðslu gatnagerðargjalda af lóðinni nr. 7 (áður nr. 7-13) við Sjafnargötu.
Frestur til að hefja byggingarframkvæmdir var til 22. júlí 2012.

Í samræmi við samkomulag dagsett 22. júlí 2009 tilkynnir skipulagsstjóri, þar sem frestur til að hefja byggingarframkvæmdir er liðinn, að lóðin sé fallin til bæjarins og verði auglýst laus til umsóknar.