Áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun

Málsnúmer 2024031084

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3843. fundur - 04.04.2024

Erindi dagsett 20. mars 2024 frá starfshópi á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vegna endurskoðunar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 (rammaáætlun). Með bréfinu vill starfshópurinn stuðla að því að allir helstu hagaðilar séu upplýstir um áformaskjal um lagasetningu sem hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og óska eftir sjónarmiðum, athugasemdum eða ábendingum til og með 8. apríl nk.

Áformaskjalið er aðgengilegt hér: https://island.is/samradsgatt/mal/3718