Gleráreyrar 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024030460

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 958. fundur - 14.03.2024

Erindi dagsett 8. mars 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignarfélags ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á útliti húss nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.