Malbikun 2024 - viðhald og nýframkvæmdir

Málsnúmer 2024021578

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 157. fundur - 05.03.2024

Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi fyrirhugaða malbikun á árinu 2024.

Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna og Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna og stíga sátu fundinn undir þessum lið.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 159. fundur - 09.04.2024

Lagt fram minnisblað dagsett 4. apríl 2024 varðandi opnun tilboða í fræsingu og yfirlögn malbiks og fræsingu á ýmsum stöðum.

Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Malbikun Akureyrar um fræsingu og yfirlögn malbiks og fræsingu á ýmsum stöðum.