Endurskoðun á samkomulagi vegna starfsfólks í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi

Málsnúmer 2024020654

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3840. fundur - 29.02.2024

Lögð fram tillaga að breytingum á samkomulagi dagsettu 8. mars 2018 milli Einingar-Iðju og Akureyrarbæjar vegna starfsfólks í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu og á ótímabundnum ráðningarsamningi hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samkomulagi milli Einingar-Iðju og Akureyrarbæjar vegna starfsfólks í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu og á ótímabundnum ráðningarsamningi hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi.