Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2023-2024

Málsnúmer 2023120068

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3830. fundur - 07.12.2023

Lagt fram erindi dagsett 1. desember 2023 frá matvælaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutun byggðakvóta til Grímseyjar og Hríseyjar fiskveiðiárið 2023-2024. Sveitarfélögum er gefinn frestur til 29. desember nk. að senda ráðuneytinu tillögur að sérreglum um byggðakvóta í einstökum byggðarlögum.
Bæjarráð óskar eftir að veitt verði undanþága í 6. gr. reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024 nr. 852/2023. Óskað er eftir því að vinnsluskylda á byggðakvóta verði felld niður í sérreglum Akureyrarbæjar um úthlutun byggðakvóta í Grímsey.

Rökin fyrir beiðninni eru einkum þau að Grímsey hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og í dag er engin vinnsla starfandi í Grímsey en landaður afli er umtalsverður og er hann fluttur í burtu til vinnslu í landi.

Ekki hefur verið talinn grundvöllur til að reka vinnslu í eyjunni með það magn sem þar kemur á land í dag. Í dag eru nánast allir þeir sem stunda sjósókn og landa í Grímsey búsettir í eyjunni og allar útgerðirnar sem þar landa eru með lögheimili í eyjunni. Það þjónar hagsmunum byggðarinnar í Grímsey að vinnsluskyldan verði felld niður í ljósi núverandi stöðu annars yrði engum byggðakvóta úthlutað í eyjunni.

Ekki er óskað eftir breytingum á reglugerð um úthlutun byggðakvóta í Hrísey.
Fylgiskjöl: