Glerártorg - uppsetning hraðhleðslustöðva á vegum ON

Málsnúmer 2023120004

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 414. fundur - 13.12.2023

Erindi dagsett 1. desember 2023 þar sem Ragnar Bjarnason f.h. Eikar fasteignafélags sækir um að fá að setja upp hraðhleðslugarð með 12 hraðhleðslustöðvum á suðausturhluta lóðar Glerártorgs.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með þeim fyrirvara að jákvæð umsögn berist frá Norðurorku.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.