Reglur um akstursþjónustu vegna einstaklinga í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2023100868

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 40. fundur - 23.10.2023

Lögð fram til samþykktar drög að reglum um akstursþjónustu vegna einstaklinga í leik- og grunnskólum.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Pollý Rósa Brynjólfsdóttir fulltrúi grunnskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi drög.