Víðimýri 8 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023081928

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 931. fundur - 31.08.2023

Erindi dagsett 29. ágúst 2023 þar sem Fannar Hafsteinsson og Björk Óðinsdóttir sækja um leyfi fyrir bílastæði og úrtaki á kantsteini við hús sitt nr. 8 við Víðimýri. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 6 metra breytt bílastæði með allt að 7 metra úrtaki úr kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.