Skautafélag Akureyrar - Búnaður fyrir nýja félagsaðstöðu í Skautahöll

Málsnúmer 2023080306

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 35. fundur - 14.08.2023

Erindi dagsett 24. júlí 2023 frá Jóni Benedikt Gíslasyni framkvæmdarstjóra Skautafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir framlagi til kaupa á búnaði fyrir nýja félagsaðstöðu í Skautahöllinni.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð sækir um 15 m.kr. í búnaðarsjóð umhverfis- og mannvirkjasviðs og samþykkir jafnframt að bera lausafjárleigu vegna kaupanna.