Ægisgata 21 - umsókn um úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023051473

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 918. fundur - 01.06.2023

Erindi dagsett 30. maí 2023 þar sem Ásgeir Hreiðarsson sækir um úrtak á kantsteini við bílastæði húss nr. 21 við Ægisgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.