Hrafnargilsstræti 22 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023030433

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 906. fundur - 09.03.2023

Erindi dagsett 8. mars 2023 þar sem Árni Hólmar Gunnlaugsson sækir um úrtak úr kantsteini og stækkun bílastæðis.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun bílastæðis með 2,7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.