Óseyri 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2023021289

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 397. fundur - 01.03.2023

Erindi dagsett 24. febrúar 2023 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Módelhúsa ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 1 við Óseyri.

Fyrirhuguð er stækkun lóðarinnar um rúmlega 300 m² til að koma fyrir fleiri bílastæðum.

Tillagan kallar á breytingu á deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts.

Meðfylgjandi eru deiliskipulagsuppdrættir.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.