Leirustígur - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2023021219

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 397. fundur - 01.03.2023

Erindi dagsett 21. febrúar 2023 þar sem Jónas Valdimarsson f.h. umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagninu göngu- og hjólastígs meðfram Leiruvegi í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.