Austurbrú 8 - umsókn um sérmerkt bílastæði

Málsnúmer 2023021062

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 397. fundur - 01.03.2023

Erindi dagsett 1. janúar 2023 þar sem Sigmundur Einar Ófeigsson og Anna Lilja Stefánsdóttir leggja inn fyrirspurn varðandi möguleika á sérmerktu bílastæði fyrir hreyfihamlaða framan við hús nr. 8 við Austurbrú.
Skipulagsráð heimilar merkingu á bílastæði sem almennt stæði fyrir hreyfihamlaða við hús nr. 8 við Austurbrú.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.