Gránufélagsgata 10 - beiðni um breytta skráningu húsnæðis

Málsnúmer 2023021007

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 397. fundur - 01.03.2023

Erindi dagsett 20. febrúar 2023 þar sem Lárus H. List f.h. Selló ehf. sækir um breytta skráningu húss nr. 10 við Gránufélagsgötu úr skemmtistað yfir í íbúðarhúsnæði.
Skipulagsráð samþykkir erindið.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.